Fjölbýlishús, sameign,

Einfaldaðu rekstur húsfélagsins

Við aðlögum þjónustu okkar að þörfum hvers húsfélags og tökum að okkur þau fjölbreyttu verkefni sem annars lenda gjarnan á herðum fárra stjórnarmanna. Með faglegri umsjón, reglulegu eftirliti og skýrri upplýsingagjöf léttum við undir með stjórn húsfélagsins og stuðlum að betri rekstri fasteignarinnar. - Reglulegt fasteignaeftirlit - Viðhald og viðgerðir - Dagbók fasteignarinnar Fasteignin þín á sér sögu. Við sjáum til þess að hún varðveitist. Rétt eins og þjónustubók bifreiðar segir til um viðhald hennar ætti hver fasteign að eiga sína eigin viðhaldssögu. Hafðu samband og kynntu þér hvað Sólberg Sameignir getur gert fyrir húsfélagið þitt. Það gæti reynst ein besta ákvörðun sem húsfélagið tekur.

Fá tilboð í fasteignaumsjón

Minni vinna fyrir stjórn húsfélagsins – meiri tími fyrir það sem skiptir máli.

Við sjáum um daglega umsjón fasteignarinnar, samskipti við íbúa og þjónustuaðila ásamt eftirfylgni verkefna. Með reglulegu eftirliti og skýrri skráningu í fasteignaumsjónarkerfi okkar tryggjum við stjórn húsfélagsins góða yfirsýn, gagnsæi og öryggi – án þess að dagleg verkefni taki yfir frítímann.

  • Við sjáum um reglulegt eftirlit, viðhald og framkvæmd verkefna í sameign.
  • Við veitum íbúum persónulega þjónustu, svörum fyrirspurnum og tryggjum skjóta og faglega úrlausn erinda.
  • Við sjáum um samskipti við verktaka og þjónustuaðila, skipuleggjum viðhald og framkvæmdir, öflum tilboða og fylgjum eftir verkum, kostnaði og gæðum fyrir hönd húsfélagsins.
  • Við bjóðum húsfélögum aðgang að fjölbreyttu úrvali rekstrarvara, varahluta og búnaðar fyrir sameignir.
  • Við öflum og berum saman tilboð í viðhald, viðgerðir og framkvæmdir fyrir hönd húsfélagsins með áherslu á hagkvæmni og gæði.
Við sjáum um fyrirspurnir íbúa, samskipti við verktaka og eftirfylgni verkefna svo stjórn húsfélagsins fái færri símtöl, minni áhyggjur og meiri frítíma.
Við tryggjum húsfélaginu faglega umsjón, markvissa eftirfylgni og skilvirkari daglegan rekstur.

Umsjón fasteigna

# Hver gætir hagsmuna húsfélagsins þíns? Við aðlögum þjónustu okkar að þörfum hvers húsfélags og tökum að okkur þau fjölbreyttu verkefni sem annars lenda gjarnan á herðum fárra stjórnarmanna. Með faglegri umsjón, reglulegu eftirliti og skýrri upplýsingagjöf léttum við undir með stjórn húsfélagsins og stuðlum að betri rekstri fasteignarinnar. ### Reglulegt fasteignaeftirlit Við fylgjumst með ástandi sameigna, búnaði og tæknikerfum með það að markmiði að greina viðhaldsþörf tímanlega, áður en smávægileg vandamál þróast í kostnaðarsamar viðgerðir. ### Viðhald og viðgerðir Við sinnum almennu viðhaldi og minni viðgerðum, auk þess sem við höfum faglærða iðnaðarmenn í okkar röðum sem geta tekið að sér umfangsmeiri verkefni. ### Dagbók fasteignarinnar **Fasteignin þín á sér sögu. Við sjáum til þess að hún varðveitist.** Við leggjum ríka áherslu á skipulega skráningu viðhalds, viðgerða og framkvæmda. Með stafrænu fasteignaumsjónarkerfi höldum við utan um viðhaldssögu fasteignarinnar svo mikilvægar upplýsingar séu aðgengilegar þegar á þarf að halda. Rétt eins og þjónustubók bifreiðar segir til um viðhald hennar ætti hver fasteign að eiga sína eigin viðhaldssögu. Í stórum fjölbýlishúsum getur slík skráning skipt sköpum, sérstaklega þegar ný stjórn tekur við, upp koma ágreiningsmál eða afla þarf gagna um eldri viðgerðir, leka og framkvæmdir. **Því góð fasteignaumsjón snýst ekki aðeins um það sem er gert í dag, heldur líka um það sem við skiljum eftir fyrir morgundaginn.** --- ## Er kominn tími til að endurskoða fasteignaumsjónina? Hafðu samband og kynntu þér hvað Sólberg Sameignir getur gert fyrir húsfélagið þitt. **Það gæti reynst ein besta ákvörðun sem húsfélagið tekur.**

Smiður mælir og merkir fyrir á krossviðarplötu

Umsjón og eftirlit

Við komum samkvæmt samkomulagi í regluleg viðhalds og eftirlitsheimsóknir.

Skrúfað í hurðarlæsingu með borvél

Viðgerðir og framkvæmdir

Við sinnum öllu almennu viðhaldi í sameigninni og lóðinni.

Beiðnakerfi sem léttir á stjórnarfólki

Íbúar senda ábendingar og beiðnir í gegnum heimasíðuna.

Samskipti við íbúa

Ef upp koma vandamál eða hafi fólk fyrirspurnir senda íbúar okkur þjónustubeiðni í gegnum heimasíðuna okkar.

Hamar, skrúfjárn, töng, pensill og naglar

Þjónusta við íbúa í séreign

Viðgerðir, uppsetning, tækniaðstoð eða flutningar.

Iðnaðarmaður á stiga að vinna við loft í íbúð

Þjónusta við íbúa

Íbúar húsfélaga í okkar umsjón hafa aðgang að fjölbreyttri þjónustu innan eigin íbúða, svo sem smáviðgerðum, húsgagnasamsetningu og tækniaðstoð.

  • Viðgerðir og lagfæringar
  • Útvegum verktaka í stærri framkvæmdir eða sértæk verkefni.
  • Útskipti á blöndunartækjum, ljósum, rofum og innstungum.
  • Lagfæringar m.a á hurðum, skápum og innréttingum.
  • Veggfestingar og frágangur.
  • Uppsetning og almenn tölvu og tækni þjónusta.
  • Aðstoð við tengingu Wi-Fi, afruglara og snjalltækja.
  • Uppsetning á sjónvörpum, streymisþjónustum og hljóðkerfum
  • Uppsetning á snjallheimilisbúnaði eins og t.d Philips Hue ljósastýringum.
  • Vegghengd sjónvörp.
  • Hengja upp myndir, hillur, spegla og skápa og panelum.
  • Innréttingar og parketviðgerðir
  • Frágangur á leiðslum og köplum.
  • Samsetning húsgagna
  • Uppsetning heimilistækja
  • Aðstoð við flutning og tilfærslur innan íbúðar og geymslu
  • Heimkeyrsla - útvegum sendibíla innan höfuðborgarsvæðisins
Panta þjónustu
ljós,hitablásarar,öryggismyndavélar,loftsíur,inngangsmottur,teppi

Rekstrarvörur

Við öflum hagstæðra tilboða í rekstrarvörur og búnað fyrir húsfélög, svo sem inngangsmottur, öryggismyndavélar, lýsingu og hitablásara. Auk þess eigum við úrval rekstrarvara og varahluta á lager. Þannig spörum við húsfélögum tíma við innkaup, einföldum reksturinn og tryggjum skjótari úrlausn viðhaldsverkefna.

Hafðu samband

Við sérhæfum okkur í fasteignaumsjón fyrir stór húsfélög og búum yfir víðtækri reynslu af rekstri, viðhaldi og daglegri umsjón fjölbýlishúsa. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, fagleg vinnubrögð og lausnir sem mæta þörfum hvers húsfélags. Hafðu samband og kynntu þér hvernig við getum einfaldað rekstur húsfélagsins þíns.